Ársskýrsla Náttúrustofu Suðausturlands 2017
Ársskýrsla Náttúrustofu Suðausturlands fyrir árið 2017 er komin á netið. Hægt er að nálgast skýrsluna hér.
Ársskýrsla Náttúrustofu Suðausturlands fyrir árið 2017 er komin á netið. Hægt er að nálgast skýrsluna hér.
Ársfundur Náttúrustofu Suðausturlands ses. verður haldinn í Nýheimum, Hornafirði þriðjudaginn 20. mars 2017 kl. 17:15.
Á eftir venjubundnum fundarstörfum verða haldin þrjú erindi á vegum Náttúrustofu Suðausturlands.
Kaffi, te og léttar veitingar í hléi.
Allir velkomnir og hvattir til að mæta
Stjórnin
Í kvöld lítur út fyrir ágæt skilyrði til stjörnuskoðunar frá Hornafirði. Því ætlum við að bjóða öllum áhugasömum í heimsókn að nýja stjörnuhúsinu heima hjá Snævari Guðmundssyni að Hraunhóli 5 í Nesjum.
Líklegast verður stjörnuskoðunin er í kvöld á fimmtudagskvöld 8. mars kl. 19:30-22:00.
Þeir sem eiga hand sjónauka eru hvattir til að koma með þá.
Komið vel klædd til að njóta stjarnanna og útiverunnar.
Fimmtudaginn 22. febrúar voru afthentir, við hátíðlega athöfn í Nýheimum, styrkir úr atvinnu- og rannsóknarsjóði Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Náttúrustofa Suðausturlands hlaut styrk úr A-sjóði fyrir verkefnið „Mat á ástandi beitarlands á Kvískerjum 2018“. Markmið verkefnisins er að kortleggja gróðurfar og meta ástand beitarlands í landi Kvískerja í Öræfum. Svæðið frá Múlagljúfri og vestur að Vattárárgljúfri verður skoðað, en með sérstaka áherslu á svæðið frá þjóðvegi og upp að fjalli.
Einnig hlaut Náttúrstofa Suðausturlands styrki úr B-sjóði. Annan í verkefnið „Uppskerutap vegna gæsaágangs í ræktarlönd á Suðausturlandi vorið 2018“, en sambærilegar rannsóknir hafa verið gerðar á Suðausturlandi árið 2014-2017. Hinn með Vatnajökulsþjóðgarði í verkefnið „Varðveisla forn-trés til sýninga“. Styrkurinn verður notaður til að sækja fornt tré sem fannst við norðanvert Jökulsárlón, forverja það og gera að sýningargrip innan héraðs.
Á sama tíma voru afhennt menningarverðlaun, umhverfisverðlaun og styrkir frá bæjarráði. Sjá nánar á http://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/menningarverdlaun-umhverfisvidurkenningar-og-styrkir-afhent
Föstudaginn 23. febrúar voru afhentir styrkir frá Vinum Vatnajökuls og hlaut Náttúrustofa Suðausturlands tvo styrki. Annar styrkurinn var í verkefnið „ Fuglalíf í Skúmey á Jökulsárlóni á varptíma 2018“ og hinn í verkefnið „ Sögulegt tímayfirlit (krónólógía) af Breiðamerkursandi/-jökli“. Tók Rögnvaldur Ólafsson formaður stjórnar Náttúrustofunnar við styrkjunum við hátíðlega athöfn á Hótel Natura í Reykjavík.
Starfsfólk Náttúrustofu Suðausturlands er að vonum mjög ánægt með þessa styrki, en þeir auðvelda vinnu við verkefni stofunnar þetta árið og þau næstu.

Frá afhendingu styrkja frá Vinum Vatnajökuls. Rögnvaldur Ólafsson stjórnarformaður Náttúrustofu Suðausturlands tók við stykjum fyrir hönd stofunnar.
Þann 15. febrúar var opnuð ljósmyndasýning eftir Snaevarr Gudmundsson í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði. Á sýningunni, sem ber heitið Náttúrusýn, eru kynntar ljósmyndir af nokkrum geimþokum, ljósmynduðum frá Íslandi. Þetta er fyrsta einkasýning höfundar en Snævarr hlaut menningarstyrk úr Uppbyggingarsjóði til uppsetningar hennar. Myndatökur af daufum geimþokum, torséðum eða ósýnilegum í sjónskoðun eru með öðru sniði en í hefðbundnum ljósmyndatökum. Lýsa þarf myndirnar afar lengi og samtímis þarf sjónaukinn að fylgja eftir göngu stjarna yfir himinninn. Í sumum myndunum á sýningunni hefur ljósi verið safnað með 30 mín tökum í 12-24 klukkustundir. Sýningin mun standa yfir til 15. apríl 2018.
Síðastliðinn föstudag var opnuð sýning á Háskólatorgi, í Tröðinni sem nefnist „Jöklar í vísindum, listum og myndum“. Sýningin mun standa yfir í fjórar vikur, þ.e. til 23. febrúar. Myndirnar á sýningunni eru eftir Snævarr Guðmundsson jöklajarðfræðing hjá Náttúrustofu Suðausturlands og Þorvarð Árnason, umhverfisfræðing og forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði. Sýningin fjallar um íslenska jökla og leggur bæði áherslu á myndræna skráningu á áhrifum hnattrænna loftslagsbreytinga á jökla og fegurð þeirra og tign.
Snævarr Guðmundsson er deildarstjóri hjá Náttúrustofu Suðausturlands með aðsetur á Höfn í Hornafirði. Hann hefur stundað rannsóknir á íslenskum jöklum og hopi þeirra um árabil. Í rannsóknum sínum hefur Snævarr m.a. skoðað möguleika þess að meta hop jökla út frá sögulegum myndheimildum, einkum ljósmyndum og kortum. Hann hefur þegar birt eina grein um slíkar rannsóknir í Jökli. Snævarr hefur um langa hríð lagt stund á ljósmyndun samhliða vísindastörfum og gefið út tvær bækur, Þar sem landið rís hæst – Öræfajökull og Öræfasveit (1999) og Íslenskur stjörnuatlas (2004), auk þess að leggja til ljósmyndir af landslagi, jöklum og stjarnfræðilegum fyrirbærum í bækur eftir aðra höfunda.
Þorvarður Árnason er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði. Hann hefur fengist við ljósmyndun og kvikmyndagerð í um þrjá áratugi samhliða fræðistörfum. Þorvarður hefur skrifað nokkrar fræðigreinar um ljóslistir, m.a. í Tímarit Máls og Menningar. Hann hefur einnig leitast við að þróa sjónrænar rannsóknaraðferðir, einkum fyrir rannsóknir á landslagi og upplifun þess en seinni árum einnig til að afla og miðla heimildum um áhrif hnattrænna loftslagsbreytinga á íslenska jökla. Þorvarður hefur haldið fjölda einkasýninga á ljósmyndum sínum og gefið út eina bók, Jökulsárlón – Árið um kring (2010).
Myndirnar á sýningunni voru upphaflega útbúnar vegna ráðstefnunnar „Jöklar í bókmenntum, listum og lífinu“ sem fram fór á Höfn dagana 28.-30. apríl 2017. Ráðstefnan var á vegum Rannsóknasetursins á Hornafirði í samvinnu við Náttúrustofu Suðausturlands og Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Til ráðstefnunnar var boðið rithöfundum og fræðimönnum á sviði bókmennta, myndlistar, heimspeki og jöklafræða, auk þess sem settar voru upp sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar og í Nýheimum.
Dagskrá hennar má finna á vef Rannsóknasetursins. Fyrirlestrarnir voru teknir upp af Ríkisútvarpinu og eru efni þáttaraðar sem finna má á vef RÚV.
Ráðstefnan, þ.m.t. gerð þessara mynda, var styrkt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Vinum Vatnajökuls og rektor Háskóla Íslands.
Út er komin skýrsla á vegum Náttúrustofu Suðausturlands, sem greinir frá ljósmælingum á völdum myrkvatvístirnum og fjarreikistjörnum, sem flestar voru gerðar frá Hornafirði árin 2016 til 2017. Myrkvatvístirni eru tvær [sól]stjörnur bundnar sameiginlegri þungamiðju. Frá jörðu séð aðgreinast þær ekki í sjónaukum og sést aðeins „stök” stjarna. Breytingar á birtustyrk leiða hins vegar í ljós raunverulegt eðli þeirra. Fjarreikistjörnur tilheyra fjarlægum sólkerfum. Þegar reikistjarna [þver]gengur fyrir móðurstjörnu sína hefur það áhrif á birtustyrkinn. Hægt er að nema breytinguna með nákvæmum ljósmælingum. Í skýrslunni er sagt frá hverju viðfangsefni sérstaklega. Að frátöldum athugunum 2016—2017 er tveim eldri viðfangsefnum skotið inn.
Skýrslan er önnur í röðinni yfir stjörnuathuganir sem gefin er út af Náttúrustofu Suðausturlands. Niðurstöður hafa verið sendar í alþjóðlegt gagnasafn þar sem þær, ásamt fjölda sambærilegra mæligagna frá stjörnuáhugamönnum, eru aðgengilegar stjarnvísindasamfélaginu. Hægt er að nálgast skýrsluna hér eða sækja hana og annað efni tengt stjarnmælingum inni á útgefið efni hjá Náttúrustofu Suðausturlands.
Út er komin skýrsla á vegum Náttúrustofu Suðausturlands um uppskerutap í ræktarlöndum vegna ágangs gæsa 2016. Verkefnið var samstarfsverkefni Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands, Búnaðarsambands Suðurlands og Landbúnaðarháskóla Íslands.
Skýrslan greinir frá verkefni sem unnið var í Austur-Skaftafellssýslu árið 2016. Þar var borin saman uppskera af friðuðum grasreitum við reiti sem fuglar komust að. Einnig voru skoðuð tengsl á milli fjölda fugla á ákveðnum túnum og rýrnun uppskeru. Markmiðið var að kanna áhrif gæsabeitar að vori og fram á sumar á uppskeru grass.
Niðurstöður sýna mismun á uppskeru af friðuðum reitum og viðmiðunarreitum, að meðaltali 728 kg af þurrefni á hektara. Þurrefnisuppskera var að meðaltali 25% minni þar sem fuglarnir komust um túnin. Á tilraunatúnunum töpuðust því 2,6 rúllur af þurrefnisuppskeru á hektara að meðaltali. Með kostnaðarútreikningum má sjá að mismunur í uppskeru kostaði að meðaltali 20.530 kr./ha. Einfalt fylgnipróf var framkvæmt til að sjá samhengi milli fjölda fugla og mismunar í uppskeru, en það sýndi enga fylgni. Ekki er hægt að alhæfa að talningatölurnar séu lýsandi fyrir fjöldann. En töluverðar líkur eru á að talningatölur sýni lágmarksfjölda fugla á hverjum stað.
Skýrsluna í heild sinni má sjá á vef Náttúrustofu Suðausturlands nattsa.is undir útgefið efni eða hér.
Sumarið 2016 voru settar upp þrjár fiðrildagildrur á vegum Náttúrustofu Suðausturlands í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands. Tvær gildrur í Einarslundi við Hornafjörð á tveimur ólíkum stöðum í lundinum og ein í garðinum við Mörtungu í Skaftárhreppi. Þann 15. apríl var kveikt á gildrunum og loguðu þær langt út í nóvember. Fyrstu fiðrildin veiddust á Höfn um miðjan mai, en flest fiðrildi voru í þeim við vitjun í lok ágúst, 274 stykki í annarri gildrunni og 346 stykki í hinni (gildru-2). Umsjón með gildrunum er í höndum Björn Gísla Arnarsonar og starfsmanna Náttúrustofu Suðausturlands.
Fyrstu fiðrildin í Mörtungu komu í gilduna í lok apríl og flestu fiðrildin voru í henni við vitjun um miðjan ágúst, 423 stykki. Umsjón með gildrunni er í höndum Rannveigar Ólafsdóttur.
Mynd 1 sýnir fjölda veiddra fiðrilda í hverri viku sumarið 2016. Flest þeirra komu í gildrurnar um miðbik og síðari hluta ágúst, en mjög fá veiddust eftir lok september.
Á mynd 2 má sjá þær tíu tegundir sem algengastar voru í gildrunum sumarið 2016 og hlutfall þeirra af heildinni á hverjum stað. Í allt komu 36 tegundir í gildrurnar og heildarfjöldinn sem gildrurnar fönguðu yfir sumarið var 5817 fiðrildi og komu 39% þeirra í gildru-2 á Höfn, sem er umtalsverð breyting frá árinu á undan, þegar 59% þess sem kom í gildrurnar náðist í Mörtungu. Fjöldi veiddra fiðrilda á milli ára hélst nokkuð stöðugur á Höfn, en í Mörtungu fækkaði eintökum um helming á milli ára.

Mynd 2. Hlutfall algengustu fiðrilda af heildinni á hverjum stað á Suðausturland sumarið 2016. Algengasta tegundin í Mörtungu er jarðygla, en túnfeti í gildru-1 á Höfn og tígulvefari í gildru-2 á Höfn. Fjöldi grasvefara í Mörtungu sker sig úr samaborið við gildrurnar á Höfn.
Þegar gögnin frá þessum þremur gildrum eru skoðuð er áhugavert að sjá að gildra nr. 2 á Höfn, í Einarslundi gefur heldur meiri fjölbreytni en sú nr. 1. Og umtalsvert færri tegundir fundust í Mörtungu þetta árið, en árið á undan.
Á síðustu árum hafa allt í allt veiðst 45 tegundir fiðrilda á Höfn, en 38 tegundir í Mörtungu.

Mynd 4. Grasvefari (Eana osseana). Tegund sem var mun algengarari í Mörtungu en á Höfn sumarið 2016.
Nokkrir flækingar bárust til stofunnar á árinu, þar af einn hauskúpusvarmi sem fannst á Hnappavöllum síðla sumars. (sjá mynd 7).
Ef einstaka flækingstegundir eru skoðaðar má sjá að kálmölur kom oftast í allar gildrurnar á SA-landi sumarið 2016, eða 50 stykki í allt (mynd 5). Eins komu 21 gammaygla í gildrurnar, en það er algengasta flækingstegundin hér á landi (mynd 6). Tvær yglur komu í gildruna í Mörtungu, en á Höfn komu fimm í aðra gildruna og fjórtán yglur í hina gildruna. Fyrsta gammayglan fannst 1. júlí í Mörtungu og síðasta yglan var í gildru-2 á Höfn 28. október.

Mynd 7. Hauskúpusvarmi (Acherontia atropos) sem fannst á Hnappavöllum síðla sumars 2016. Vænghaf hans er 12,5 cm.
© 2021 Náttúrustofa Suðausturlands | KT: 440213-0490 | Litlubrú 2 | 780 Höfn í Hornafirði | Netfang: info@nattsa.is | Vefur: DIMMS
