© 2021 Náttúrustofa Suðausturlands | KT: 440213-0490 | Litlubrú 2 | 780 Höfn í Hornafirði | Sími: 470 8060 | Netfang: info@nattsa.is | Vefur: DIMMS
Styrkir frá Vinum Vatnajökuls
/í Fréttir/eftir Kristín HermannsdóttirÍ gær tók Náttúrustofa Suðausturlands við tveimur styrkjum í verkefni sem stofan mun m.a. vinna að á nýju ári.
Annar styrkurinn er í verkefni sem kallast „Náttúrustígur“. Í lýsingu á verkefninu segir: Á göngustíg sem liggur vestanmegin við byggðina á Höfn í Hornafirði er ætlunin að koma fyrir upplýsingum um náttúruna í víðu samhengi. Frá stígnum er frábært útsýni til jökla og suðausturhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Fyrsta skrefið er að koma fyrir líkani að sólkerfinu í réttum hlutföllum, hvað varðar stærð og fjarlægðir.
Hin styrkurinn er í verkefni sem kallast „Aldursgreining gróðurleifa við Breiðamerkurjökul“. Í lýsingu á því verkefni segir: Nýverið fannst gróðurlag milli setlaga í jökulaur framan við Breiðamerkurjökul. Setlagaopnan er nýlega komin undan jökli (um 2009) og situr óhögguð á upprunalegum myndunarstað. Jökullinn skreið yfir þetta svæði fyrir árið 1700 en áður lagðist jökulaur yfir gróðurlagið og varði það fyrir hnjaski. Venjulega eyða jöklar gróðri þegar þeir ganga yfir land og afmá þar með gróðurfarssögu í jarðlögum. Því er hér um einstakan fund að ræða. Í laginu er mór, mosi, birki, víðir og fleiri jurtategundir. Þessar lífrænu leifar þarf að aldursgreina til þess að finna aldur gróðursins og skýra hvenær gróðurlendi breyttist í Breiðamerkursand við kólnandi loftslag.
Alls hlutu 22 verkefni styrki og má lesa nánar um það á vef Vina Vatnajökuls og fréttir af styrkveitingunni á mbl.is og ruv.is
Óskar Náttúrustofa Suðausturlands öðrum styrkþegum til hamingju með sína styrki.
Jöklar hopa
/í Fréttir/eftir Snævarr Guðmundsson
Náttúrustofa Suðausturlands hefur tekið að sér vöktun nokkurra skriðjökla í Öræfajökli. Verkefnið er unnið í samstarfi við Jöklarannsóknafélag Íslands og jöklahóp Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Starfsmaður Náttúrustofu fór 20. október og mældi sporðastöðu Breiðamerkurjökuls, Kvíárjökuls, Hrútárjökuls og Fjallsjökuls. Þann 3. nóvember var gengið með GPS tæki meðfram sporði Fláajökuls á kafla (sjá mynd).
Frá árinu 2010 hafa jöklarnir rýrnað talsvert en hop þeirra er breytilegt. Á þessu tímabili hefur Breiðamerkurjökull hopað 200 – 300 m upp af Nýgræðukvíslum, eða um 65 – 100 m/ári. Sporður Fláajökuls, austan Jökulfells hefur hopað um 40 – 100 m frá árinu 2010. Svipað hop átti stað á Hrútárjökli. Sá hluti Kvíárjökuls sem var mældur í þetta sinn hefur ýmist stað í stað eða gengið lítillega fram (~20 m) samanborið við sporðastöðu árið 2010.
14. nóvember fóru starfsmenn Náttúrustofu Suðausturlands að Heinabergsjökli ásamt nemendum og kennurum í Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu (FAS) og fylgdust með mælingum þeirra á jöklinum. Þær eru hluti af náttúrufarsrannsóknum sem kenndar eru og FAS sinnir. Sjá athuganir þeirra á slóðinni: http://nattura.fas.is/index.php/joklamaelingar.
-
- Kvíárjökull frá einum mælistað 20. október 2013. Framan við jökulsporðinn hefur myndast lón í kjölfar jökulhops síðustu áratugi.
-
- Eyjólfur Guðmundsson, skólameistari Framhaldsskólans í Austur Skaftafellsýslu, hefur sinnt mælingum á Heinabergsjökli frá 1990.
-
- Nemendur FAS í mælingaferð 14. nóvember 2013. Eyjólfur Guðmundsson skólameistari rýnir í mælikíkinn. Kristín Hermannsdóttir fylgist með.
Óvissuferð
/í Fréttir/eftir Kristín HermannsdóttirFöstudaginn 1. nóvember var haldin ráðstefna á Hótel Höfn á vegum Ríkis Vatnajökuls sem nefnd var „Tilvist og tækifæri“. Þegar ráðstefnunni lauk tók við óvissuferð sem var í samvinnu við Náttúrustofu Suðausturlands.
Ferðin hófst í Óslandi þar sem kynnt var hugmynd að sólkerfislíkani sem Náttúrustofa Suðausturlands hyggst koma upp. Í því er gert ráð fyrir að sólin sé staðsett á hæsta punkti í Óslandi en reikistjörnurnar verða í réttum stærðar og fjarlægðarhlutföllum meðfram göngustíg sem liggur vestanmegin við Höfn, alla leið að Silfurnesgolfvelli. Frá Sólinni var gengið að Merkúríus, Venus, Jörðinni, Mars, smástirninu Ceres, Júpiter og Satúrnus en bent var á hvar Úranus og Neptúnus yrðu staðsettar. Staldrað var við hverja reikistjörnu og viðstaddir fræddir um þær. Þar sem vindurinn var hvass og kalt í veðri, voru stoppin ekki löng á hverjum stað. Að síðustu var stoppað á Leiðarhöfða þar sem ánægjulegri en vindasamri óvissuferð lauk.
-
- Snævarr Guðmundsson fræðir viðstadda um Jörðina, en Kristín Hermannsdóttir heldur á lítilli perlu sem sýnir stærð jarðarinnar í líkaninu. Lengst til vinstri brosir í kampinn Guðrún Sigurðardóttir hjá Ríki Vatnajökuls.
-
- Á leiðinni var arkað meðfram sjónum frá Óslandi að Leiðarhöfða og gekk sjórinn yfir þátttakendur í óvissuferðinni.
-
- Það blés hressilega um þátttakendur í óvissuferðinni, en langflestir voru þó klæddir til að njóta þess sem fyrir augu og eyru bar.
Myrkurgæði – greinargerð
/í Fréttir, Verkefni/eftir Kristín HermannsdóttirÚt er komin greinargerð hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um myrkurgæði og tillögur um hvernig sporna megi við ljósmengun á Íslandi, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Starfsmaður Náttúrustofu Suðausturlands, Snævarr Guðmundsson vann ásamt fleirum í starfshópi að þessari greinargerð, en starfshópurinn hefur starfað síðan í mars 2012 og var Mörður Árnason formaður hans.
Í tilefni af útgáfu greinargerðarinnar um Myrkurgæði á Íslandi verður haldið málþing um myrkurgæði og ljósmengun miðvikudaginn 23. október, kl. 10–12, í fundarsal Þjóðminjasafnsins. Sjá nánar í frétt um málþingið á vef umhverfisráðuneytisins. http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/2490
Greinargerði er gefin út rafrænt og má skoða hana eða sækja hér.
Hér má sjá auglysinguna .
Vefur Náttúrustofu Suðausturlands
/í Fréttir/eftir Kristín HermannsdóttirVefur Náttúrustofu Suðausturlands hefur formlega verið settur í loftið. Hann var hannaður af Daníel Imsland (dimms.is) sem einnig hannaði fyrirtækismerkið – logóið.
Á vefinn er fyrirhugað að setja inn fréttir, upplýsingar um verkefni, myndir og viðburði, en einnig er hægt að hafa samband við starfsmenn Náttúrustofu í gegnum fyrirspurnir.
Stjörnuverið á Höfn
/í Fréttir/eftir stjoriÁ degi íslenskrar náttúru 16.september bauð Náttúrustofa Suðausturlands upp á stjörnuskoðun í stjörnuveri sem komið var fyrir á bókasafninu í Nýheimum. Stjörnuver er sýndarheimur þar sem áhorfendur sitja eða liggja inni í kúlulaga hvelfingu og sérstakt sýningartæki varpar mynd af stjörnuhimninum á veggi hennar.
Tvær sýningar voru síðdegis á náttúrudeginum fyrir almenning og mættu samtals tæplega 40 manns á þær. Fyrr sama dag og daginn eftir bauð Grunnskóli Hornafjarðar nemendum sínum upp á 14 sýningar og komu þá tæplega 300 nemendur auk kennara í tjaldið. Á miðvikudagsmorgun komu svo um 30 krakkar á leikskólanum Lönguhólum á sýningu sem var sniðin að þeirra aldri.

Stjörnuverið uppblásið á bókasafninu – tilbúið til sýningar.

Nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar á leið inn í stjörnuverið.

Nokkrir kakkar og starfsmenn á Lönguhólum bíða spennt eftir að þeirra sýning hefjist.
Dagur íslenskrar náttúru
/í Fréttir/eftir stjoriÍ tilefni af degi íslenskrar náttúru býður Náttúrustofa Suðausturlands, sem nýlega tók til starfa, til stjörnuskoðunar í stjörnuverinu. Stjörnuver er sýndarheimur þar sem áhorfendur sitja eða liggja inni í kúlulaga hvelfingu og sérstakt sýningartæki varpar mynd af stjörnuhimninum á veggi hennar.
Tvær sýningar verða í boði: kl. 16 og kl. 17 þann 16. september í Nýheimum.
Áhugasamir geta sótt miða í bókasafnið samdægurs, en einungis komast 25 manns á hverja sýningu.
Sjá nánar á www.hornafjordur.is og http://natturumyndir.com/
Allar upplýsingar um ýmsa viðburði um allt land á degi íslenskrar náttúru má sjá á sérstökum vef Umhverfisráðuneytisins http://www.umhverfisraduneyti.is/dagur-islenskrar-natturu-2013/
Minnt er á að Grunnskóli Hornafjarðar mun bjóða öllum sínum nemendum í stjörnuverið en sýningarnar síðdegis eru hugsaðar fyrir alla.
Verið hjartanlega velkomin.
Rostungur við Jökulsárlón.
/í Fréttir/eftir stjoriÁ morgunblaðsvefnum frá 16.8.2013 er frétt um rostung við Jökulsárlón. MBL
Hann sást fyrst að morgni 16.ágúst og dvaldi á sandinum neðan við brúna yfir Jökulsá þann dag og fram á nótt. Morguninn eftir var hann á bak og burt.
Á vef Selaseturs Íslands á Hvammstanga er hægt að lesa sér til um rostunga. Þeir eru mjög sjaldgæfir við Ísland, en síðast sást rostungur á Reyðarfirði um miðjan júlí.
Samkvæmt samanburði á þessum tveimur rostungum sést að þar er líklega um sama einstaklinginn að ræða, alla vega eru tennur jafn langar og sú vinstri aðeins styttri. Þetta sést þegar bornar eru saman myndir af moggavefnum og myndir sem Kristján Svavarsson tók af Reyðarfjarðarrostungnum. (sjá á vef Náttúrustofu Austurlands).
Á mynd sem Þórhildur Magnúsdóttir Landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði tók fljótlega eftir hádegi má sjá að hann liggur afslappaður á sandinum og er svolítið rauðlitaður undir húðinni. Rauði liturinn stafar sennilega af því að honum hefur verið heitt og þar sem rostungar eru lítið hærðir sést blóðflæði undir húðinni vel. Myndin sem hér birtist var tekin um kl. 16:30 af Sibylle von Löwis.














