Uppskerutap í ræktarlöndum í Austur-Skaftafellssýslu vegna ágangs gæsa, árið 2016
Út er komin skýrsla á vegum Náttúrustofu Suðausturlands um uppskerutap í ræktarlöndum vegna ágangs gæsa 2016. Verkefnið var samstarfsverkefni Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands, Búnaðarsambands Suðurlands og Landbúnaðarháskóla Íslands.
Skýrslan greinir frá verkefni sem unnið var í Austur-Skaftafellssýslu árið 2016. Þar var borin saman uppskera af friðuðum grasreitum við reiti sem fuglar komust að. Einnig voru skoðuð tengsl á milli fjölda fugla á ákveðnum túnum og rýrnun uppskeru. Markmiðið var að kanna áhrif gæsabeitar að vori og fram á sumar á uppskeru grass.
Niðurstöður sýna mismun á uppskeru af friðuðum reitum og viðmiðunarreitum, að meðaltali 728 kg af þurrefni á hektara. Þurrefnisuppskera var að meðaltali 25% minni þar sem fuglarnir komust um túnin. Á tilraunatúnunum töpuðust því 2,6 rúllur af þurrefnisuppskeru á hektara að meðaltali. Með kostnaðarútreikningum má sjá að mismunur í uppskeru kostaði að meðaltali 20.530 kr./ha. Einfalt fylgnipróf var framkvæmt til að sjá samhengi milli fjölda fugla og mismunar í uppskeru, en það sýndi enga fylgni. Ekki er hægt að alhæfa að talningatölurnar séu lýsandi fyrir fjöldann. En töluverðar líkur eru á að talningatölur sýni lágmarksfjölda fugla á hverjum stað.
Skýrsluna í heild sinni má sjá á vef Náttúrustofu Suðausturlands nattsa.is undir útgefið efni eða hér.