Skúmey og ísjakar í Jökulsárlóni

Þann 27. ágúst verður frumsýnd myndin „Um tímann og vatnið“ sem byggir  á samnefndri bók Andra Snæs Magnússonar. Bókin fjallar um hvernig eðli vatns á jörðinni muni breytast á næstu hundrað árum og hvað það þýðir að lifa á tímum breytinga. Þó kvikmyndin byggir á bókinni fer hún meira inn í fjölskyldu Andra Snæs, sérstaklega afa hans og  ömmu, þau Árna Kjartansson og Huldu Filippusdóttur. Þau voru meðal annars stofnfélagar JÖRFÍ. Frumsýning myndarinnar fer fram í Háskólabíó og hægt er að nálgast miða á tix.is. Þess má geta að Snævarr hjá Náttúrustofunni var einn af vísindalegum ráðgjöfum í þessu verkefni. Í framhaldi var honum boðið að rita grein um reynslu sína af samstarfinu með kvikmyndatökufólkinu á Breiðamerkursandi