Síðastliðnar vikur hafa sérfræðingar Náttúrustofu Suðausturlands unnið að rannsókn á smádýralífi í leirunum í Skarðsfirði. Tilgangurinn er að fá yfirlit á lífríki svæðanna en sambærileg rannsókn var gerð á leirum Skarðsfjarðar árið 1979. Fyrir þetta verkefni leitum við að ljósmyndum af Skarðsfirði á fjöru, sem teknar voru á árunum 1970-1990. Slíkar myndir hjálpa til að öðlast betri sýn í ástand svæðisins á því tímabili og framvindu leiranna í Skarðsfirði til okkar daga. Myndir má senda stofunni á Facebook, á netfangið hoffy@nattsa.is eða koma með þær á skrifstofur starfsmanna á vesturgangi neðri hæðar í Nýheimum.
Hólmfríður Jakobsdóttir, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Suðausturlands, nýverið grein um verkefnið í Eystrahorn sem heitir „Smádýralíf Skarðsfjarðar“. Greinina í heildsinni má nálgast í Eystahorni.

