Stuðlaberg og berggangur í Þórishólma í Breiðafirði.
Toppskarfar að spóka sig í eyju í Breiðafirði. Nær allur toppskarfastofninn verpur í Breiðafirði og telst hann því til mikilvægs fuglasvæði fyrir tegundina.
Ígulker af botni Breiðafjarðar. Fjólubláa ígulkerið kallast marígull (Echinus esculentus) og það brún-græna Skollakoppur (Strongylocentrotus droebachiensis). Efst í hægra horninu má sjá glitta í svamp.
Maja flytur erindið Áhrif landnýtingar á gróður- og pöddusamfélög í landbúnaðarlandi.
Hóffý rekur erindið Harðjaxl í hættu – staða og framtíð skúms á Íslandi ásamt Kolbrúnu hjá Náttúrustofu Austurlands. Staða skúmsins er afar slæm en mikil fækkun hefur orðið í stofninum. Skúmur er skráður í bráðri hættu (CR) á válista fugla frá 2025.






