Merking á kríuungum í Óslandi
Síðdegis þann 3. júlí tók starfsmaður Náttúrustofu Suðausturlands þátt í merkingum á kríuungum í Óslandi. Brynjúlfur Brynjólfsson hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands sá um að merkja þá unga sem fundust en nokkur ungmenni aðstoðu einnig við að finna ungana í háu og blautu grasinu. Þann dag voru merktar 161 kríur af Fuglaathugunarstöð Suðausturlands og þar af voru 124 þeirra í Óslandi. Einnig fundust nokkrir dauðir ungar. Mikil úrkoma hefur verið á Höfn síðustu sólarhringa og því verða lífsskilyrði fyrir litla ófleyga kríuunga slæm og sumir þeirra kafna eða krókna í blautu grasinu sem leggst yfir þá.
Til að fræðast nánar um merkingar á fuglum má lesa vef Náttúrufræðistofnunar Íslands http://www.ni.is/dyralif/fuglar/fuglamerkingar/ en Fuglaathugunarstöð Suðausturlands er með merkingarleyfi frá henni.