Ársfundur Náttúrustofu Suðausturlands 2017
Fjórði ársfundur Náttúrustofu Suðausturlands ses. verður haldinn á Icelandair Hótelinu á Kirkjubæjarklaustri miðvikudaginn 29. mars 2017 kl. 20:00.
Á eftir venjubundnum fundarstörfum verða haldin þrjú erindi á vegum Náttúrustofu Suðausturlands.
- Kvískerjajöklar – Jöklabreytingar í ljósi gamalla ritheimilda og vitnisburðar Kvískerjabræðra: Snævarr Guðmundsson
- Kynning á verkefninu „Hættumat vegna jökulvatna í Skaftárhreppi“: Kristín Hermannsdóttir.
- Stærsti sjónauki til stjörnurannsókna á Íslandi settur upp á Hornafirði: Snævarr Guðmundsson.
Kaffi, te og léttar veitingar í hléi.
Allir velkomnir og hvattir til að mæta
Hornafriði 14. mars 2017
Stjórnin