Þann 27. ágúst verður frumsýnd myndin „Um tímann og vatnið“ sem byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnússonar. Bókin fjallar um hvernig eðli vatns á jörðinni muni breytast á næstu hundrað árum og hvað það þýðir að lifa á tímum breytinga. Þó kvikmyndin byggir á bókinni fer hún meira inn í fjölskyldu Andra Snæs, sérstaklega afa hans og ömmu, þau Árna Kjartansson og Huldu Filippusdóttur. Þau voru meðal annars stofnfélagar JÖRFÍ. Frumsýning myndarinnar fer fram í Háskólabíó og hægt er að nálgast miða á tix.is. Þess má geta að Snævarr hjá Náttúrustofunni var einn af vísindalegum ráðgjöfum í þessu verkefni. Í framhaldi var honum boðið að rita grein um reynslu sína af samstarfinu með kvikmyndatökufólkinu á Breiðamerkursandi
© 2021 Náttúrustofa Suðausturlands | KT: 440213-0490 | Litlubrú 2 | 780 Höfn í Hornafirði | Sími: 470 8060 | Netfang: info@nattsa.is | Vefur: DIMMS

