Síðastliðinn miðvikudag, 25. mars, var 13. ársfundur Náttúrustofu Suðausturlands haldinn í Netheimum á Höfn í Hornafirði. Farið var yfir ársskýrslu og ársreikning stofunnar árið 2025 auk þess sem helstu verkefni síðastliðins árs voru kynnt. Auk venjubundinna fundarstarfa flutti starfsfólk stofunnar erindi úr starfi stofunnar. Hólmfríður Jakobsdóttir flutti erindið Hvað leynist í leirunni sem fjallar um rannsóknir stofunnar á smádýralífi í leirum Skarðsfjarðar. Róbert Ívar Arnarsson flutti erindið Vegagerð, mýrlendi og örverusamfélög, þar segir hann frá rannsóknum um áhrif vegagerðar á mýrlendi og rannsóknum á örverusamfélögum í jarðvegi. María Rúnarsdóttir flutti erindið Áhrif landnýtingar á gróður og pöddusamfélög í landbúnaðarlandi.
Ársskýrslu Náttúrustofu Suðausturlands 2025 má sjá hér.
Upptöku af yfirferð ársreiknings og starfi stofunnar 2025 má sjá hér.

