Stjörnuskoðun í kvöld – aflýst vegna skýja
Fyrirhugaðri stjörnuskoðun á vegum Náttúrustofu Suðasturlands, sem fara átti fram frá nýbyggðri stjörnuathugunarstöð í kvöld 1.april kl. 20:30-22:00, er aflýst vegna skýja. Þetta er viðburður í tengslum við Leyndardóma Suðurlands og verður reynt á ný á fimmtudaginn 3.april. Áhugasamir geta fylgst með hér á vefnum eða á facebook síðu Náttúrustofu Suðausturlands.