Gasmóða yfir Hornafirði?
Íbúar í Hornafirði urðu þess varir, síðdegis þann 23. september 2014, að óvenjuleg móðuský bárust inn yfir héraðið í heiðríkju. Var þetta í annað sinn á stuttum tíma sem það gerist en einnig varð vart blámóðu laugardaginn 20 september. Slíks varð reyndar vart víða um land og á hálendinu (sjá mynd frá Eldgjá). Í þetta sinn sást móðan þokast yfir fjalllendi við rætur Vatnajökuls og breiðast smám saman yfir láglendið í nokkurri hæð. Byrgði að nokkru sýn til sólar svo rauðleitri birtu sló yfir. Myndirnar, sem voru teknar frá Nesjum, sýna móðuna eftir að hún fór að skríða inn yfir fjöllin um kl 17:00. Ekki er hægt að fullyrða afdráttarlaust hvort um sé að ræða gasmóðu frá gosstöðvunum í Holuhrauni eða óvenjuleg skýjamyndun. Þetta sýnir hins vegar að mikilvægt er að fá mælitæki hingað á staðinn til þess að skera úr um það.