Vetrarmánuðirnir eru tími íshellaskoðunar 2016
Starfsmenn Náttúrustofu Suðausturlands renndu á dögunum út á Breiðamerkursand í vísindalegum erindagjörðum en gafst engu að síður tími til að skoða íshelli í Breiðamerkurjökli sem gjarnan er auðkenndur sem „Kristalshellirinn“ af leiðsögumönnum á svæðinu. Það er skemmtileg upplifun að komast í hellinn sem þennan dag skartaði dulúðlegum bláma og sérkennilegum holum eða „vösum“ í ísinn. Íshellar í Breiðamerkurjökli hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn en þangað sækja þeir flestir undir traustri leiðsögn. Myndirnar eru teknar í íshellinum og á ströndinni við Jökulsárlón.